Ferill 296. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
111. löggjafarþing 1988–1989.
Nr. 15/111.
Þskj. 1063 — 296. mál.
Þingsályktun
um dagvistarmál fatlaðra barna.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta gera könnun á þörfum fatlaðra barna fyrir dagvistun og hvaða úrbóta sé þörf á því sviði.
Við þá athugun verði höfð hliðsjón af stefnumótun um forskólastig og að fötluð börn fái sérhæfða þjálfun sem mest í tengslum við almennar deildir dagvistarstofnana.
Samþykkt á Alþingi 5. maí 1989.